26.03.2007 22:05:33 / mattiskratti

Skondið er ekki fyndið nema skondið sé

Verð að segja ykkur frá einu skemmtilegu sem ég lenti í um helgina

Var að dæma á Goðamótinu í Boganum á föstudaginn og var gjörsamlega í essinu mínu!! Collina hvað??:lol:
Okey, þetta er kannski ekki í frásögur færandi fyrir utan einn leik. Leiknir R - Þróttur N í 6 flokki karla. Þróttarar byrja mun betur og komast í 2-0 og það er þannig að maður þarf að fá nafnið hjá þeim sem skorar til að hægt sé að komast að því hver muni hljóta Gullskóinn8)
okey, nóg af því... Þróttarar komast í 3-0 og ég hleyp að stráknum og spyr hvað hann heiti. Þá fæ ég þetta svar: Ég heiti Sævar...  ég er bróðir þinn:lol::lol::lol:

Bjáni ég!!! að þekkja ekki sinn eigin bróður.. okey ekki albróður heldur hálfbróður en samt! ég náttúrulega varð eins og bjáni þarna og bara Já blessaður!!:lol: reyndar gríðarlega fyndið, og svona had to be there moment. Þróttarar sigruðu svo í hörkuleik

En að öðrum hlutum........Djöfull eru Bandaríkjamenn FEITIR!! horfði á einhvern þátt.. Trading spouses eða eitthvað... fjölskyldur að skipta um mömmur og eitthvað.. og svo var viðtal við aðra mömmuna og maður bara já hugguleg manneskja.... en svo stóð hún upp8| Bara algjört fjall:lol: OG allir í þessum þætti voru bara huuuge!!

Eru ekki örugglega allir að kjósa?? ungfruisland.is og sjallinn.is eitt atkvæði á dag kemur skapinu í lag;)

pleeeeeeeeeeee nóg af bloggi, en klárlega ekki nóg af kvittum!! laga það fólk:haha:


» 14 hafa sagt sína skoðun

24.03.2007 18:03:04 / mattiskratti

hahahahahahaha

Vertu ekki að láta það bitna á öllum hérna að eina kærastan sem þú hefur átt endar á .jpeg

:lol::lol::lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 12:30:49 / mattiskratti

pleee... Spýta er hörð þótt blaut sé

Aldrei veit maður hvað skal skýra þessi blogg... spurning um að setja bara málshætti sem ég bý til...hmmm måske bara.

ALLIR AÐ FARA INNÁ UNGFRUISLAND.IS OG KJÓÓÓÓÓSSSSSSAAAAA (Gerði mína;))

Helgin var mögnuð, Illugastaðir komu vel á óvart þrátt fyrir að við hefðum verið sett í fatlaðabústaðinn og sneydd öllum lífsnauðsynjum eins og dvd tæki, grillkolum og textavarpi8| En okkur tókst að gera þessa helgi barasta mjög fína. Þetta er svona það helsta sem gerðist, í punktaformi8)

  • Ég er snillingur að grilla, þótt að ég hafi næstum því verið búinn að kveikja í bústaðnum
  • Hamborgarar og pylsur eru langtum bestar berar í brauði og það skal enginn segja mér neitt annað
  • Æfingin sem var á laugardagsmorgninum fer seint úr mínu minni, vorum fimm í liði og ég bauð mig fram í fyrstu keppnina og komst þá að því að ég þurfti að reyna að ná í einhverjar keilur sem voru leeeeeeeeeengst uppá einhverju fjalli og eitthvað!! á meðan voru hinir í liðinu í halda á lofti keppni og eitthvað bull!! illa ósáttur, en þeim mun þægilegra að skella sér í pottinn eftirá8)
  • Okkar lið rústaði ratleiknum og eftir hann eyddum við deginum í að semja baráttusöng sem við sungum um kvöldið og vorum án efa með besta sönginn. Hann var eitthvað á þessa leið:
  • Hjálpaðu okkur upp, við getum það ekki sjálfir
    Við erum orðnir leiðir á að húka í fyrstu deild
  • Man ekki meir.. en þetta var geggjað en eitt stóð þó uppúr og það var  hin stórkostlega frammistaða Jónsa sem tók Til hamingju Ísland til að borga gamla skuld, og skuldar hana reyndar ennþá því hann gat aldrei klárað lagið, við hlógum svo mikið af honum:lol:
  • Mikið borðað og mikið spjalla og mikið pottast og lítið sofið

Ekki má samt gleyma heimferðinni og bar það hæst að Pésa, Dóra og Arnari leiddust eitthvað að keyra á veginum og fóru í smá torfærur:lol: sem enduðu sem betur fer vel, þökk sé bóndans á traktornum

Langar að varpa hér einni léttri spurningu, Er ekki einhver game í að fara á 300 í bíó í kvöld á powersýningu kl. 10.20?? Þannig er mál með vexti að Gerður er búin að sjá hana og ekki fer maður einn í bíó8|

Afsaka svo löngu biðina eftir bloggi, en þannig er mál með vexti að ég lent í þvílíkum lagadeilum við yfirmenn málverkastofnunnar Bandaríkjanna um fiskmyndina mína, þeir vildu meina að ég hafi verið að falsa verk eftir Rembrandt og sýna sem mitt:S bara rugl, þetta er bara mín sköpunargáfa og hana nú!!

KVIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIITTTTTTTTTTTAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA var heillengi að pikka þetta allt inn þannig að ég á skilið kvitt eða comment eða hvað sem þú kallar þetta!!!:klikk:


» 8 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 10:41:07 / mattiskratti

SSSSSSSSOOOOOOOOOOOOSSSSSSSSSSS

Hjálp!!

Veistu um einhvern sem er að koma norður á næstunni og er með pláss í bílnum hjá sér fyrir 4 felgur???????8)

EEEndilega látið mig vita ef þið vitið um einhvern, það yrði algjör snilld. Gæti líka vel borgað nokkra þúsundkalla fyrir ómakið;)

Langar annars bara að setja inn mynd sem ég teiknaði í Paint, er að pæla í að verða listamaður:lol:


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 21:18:48 / mattiskratti

Ferming

Váááá ég var að horfa á vííídjó af fermingunni minni!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

BWAHAHAHA talandi um mesta hözzler sem sést hefur, ég var rosalegur. Þvílíkt tanaður og með strípur og kuflinn að springa af mér út af vöðvum:lol::lol::lol:

ekki alveeeg... frekar svona ógeðslega lítill og asnalegur, náði varla uppúr skónum mínum, var samt með strípur8) haha:D Ótrúlega gaman að eiga svona á filmu og geta rifjað upp þessa hluti:)

Fórum í Bónus í dag eftir vinnu og gerðum helgina reddý matarlega séð. Nóg af nammi og snakki og grillkjöti að ógleymdu gosinu. Verst að ég veit ekkert hvar þetta er8| maður verður víst bara að elta hina á eiturmögnuðu Rollunni hennar Gerðar (samt eiginlega minn bíll sko:haha:)

langar svo bara að minna fólk á að kvitta á þessa blessuðu síðu.. reynum að ná heimsóknafjöldanum upp í jafnmikið og missnort07.central.is ------->>>> 1800 heimsóknir8|8| á einum degi!!! ég næ því alveg er það ekki?? kominn með 34 og klukkan rétt orðin 20.00:lol:

Kannski ég ætti að fara að birta brjóstamyndir af mér eða eitthvað til að reyna að auka áhorfið8) hahaha

Nóg í bili, ætla að halda áfram að horfa á season 2 af íslenska Idolinu, djöfull er gaman að róta í gamla draslinu og horfa á eldgamlar spólur... bara fyndið:lol:

Hljómsveit dagsins: Incubus án nokkurs vafa, hlustið á alla diskana þeirra! það er skipun
Manneskja dagsins: Klárlega ég fyrir að nenna að vakna kl. 05.20 í morgun til að fara á æfingu (Gerður vildi fá þennan heiður fyrir að bjóða mér í ljós.. neee  múhaha8))

Svo er bara um að gera að koma í heimsókn í vinnunna maður, verð örugglega í próteinganginum að panta próteinstangir8)

kv.
Matti, sárið í munninum á þér sem þú getur ekki hætt að narta í


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 21:35:57 / mattiskratti

Þreyyyyyyyyta

Vá hvað ég er búinn á því eftir pressuhlaupið maður!!!!

Þið sem vitið ekki hvað pressuhlaup er þá er það 300 metra hringur sem hlaupinn er í 12 mínutur í senn. Eftir það færðu 3 min í pásu og svo er haldið af stað í aðrar 12 mín!! Mega erfitt. Og ekki nóg með það, heldur um leið og hlaupið er búið er snarað sér í fótboltaskónna og æfing fylgir í kjölfarið. Og þá er eins gott að vera í sigurliði því annars þarftu að splæsa kók á markerinn þinn, maður fer að verða gjaldþrota á þessu:D en ljúft þegar maður vinnur8)

Góð helgi framundan, mfl leggur land undir fót og ferðast austur á Illugastaði.. eða er það vestur??? man það ekki, en það verður stuð, okkar bústaður er klárlega flottastur með mér, Gerði, Gogga, Heijó og Andra Heiðari. Ég býst við brjáluðu fyllerií langt fram eftir öllu og eiginlega bara alla helgina8| ég verð bara í kókinu á meðan og nartandi í próteinstöng:haha:

Var að pæla eitt í vinnunni í dag.. sem er btw Hagkaup! vúhúú geggjað alveg hreint... okey.. var að pæla... það er sameiginlegt klósett fyrir starfsmenn, og eru konur í gríííðarlegum meirihluta... og oft vaknar skákþörfin hjá manni og það versta sem ég get hugsanlega upplifað er að vera í miðri skák við  páfann sjálfan, vera að máta hann og þá LABBAR EINHVER INN!! hvað gerir maður þá???? lætur bara kónginn splassa í vatninu og labbar út voða happý með skítaskýið á eftir sér?? nei veistu held ekki!!! Þá er bara eitt sem hægt er að gera og það er að halda í sér og gefa ekki frá sér eitt einasta hljóð, svo enginn viti að þetta sért þú! og vona bara að viðkomandi sé bara að fara að þvo á sér hendurnar en ekki eitthvað meira, því þá er maður í vondum málum8| sérstaklega ef maður er kominn langt með skákina:lol:

Þess vegna er ég hættur að nota þessi klósett, bara við tillitssemi við hina, nota bara viðskiptavinaklósettið, þýðir ekkert annað. Þá getur maður bara tekið sinn í tíma og verið rólegur. Alltaf slæmt samt þegar einhver er að bíða eftir manni og labbar á VEGG þegar ég er farinn út:klikk:

Enda kannski ekki furða að ég var kallaður Matti Málarameistari þegar ég var að vinna hjá Höldur:lol:

Flopp dagsins: Án efa BRITAIN'S NEXT TOP MODEL!! ekki ein sæt í þessum hóp8|
Manneskja dagsins: klárlega ég fyrir að hafa eldað frábært pasta og fisk8)
Fyrirtæki dagins: Áscó sem ætlar að redda bílnum fyrir mig á morgun:!: sjibbíí

Kv.
Matti


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 19:47:04 / mattiskratti

Leiðsögutúr um Hamragerði 27

Góðan daginn og velkominn í þennan stutta túr um húsið sem ég og Gerður búum í.

Þar sem að þið nennið aldrei að koma í heimsókn þá ætla ég bara að sýna þér af hverju þú ert að missa8)

Byrjum á Eldhúsinu:

Þarna eiga töfrarnir sér stað! En þetta er eitt af fáum skiptum sem að það er svona hreint:lol: Alltaf allt útum allt!!

Eldhúsborðið sjálft! CELL TECH ið að OWNA PLEISIÐ!! HARÐUR!

Allt gríðarlega snyrtilegt eins og má sjá. Hilluna gerði ÉG ALEINN SJÁLFUR, FÉKK ENGA HJÁLP!!:^). Neeee.. ég yrði ekki góður smiður, hef ekki þolinmæðina í þetta

Stofan okkar, kjörinn staður til að setjast niður og ræða heima og geima þegar þú kemur í heimsókn! og þú mátt koma með nammi!!

Og þá er það aðalmálið8) 32" sjónvarp, DVD græjur, tölva og allur pakkinn!! ef þetta er ekki góða ástæða til að kíkja í heimsókn þá veit ég ekki hvað:klikk:

Langaði bara að henda þessum myndum inn, og þess má til gamans geta að ÉG þreif þetta allt saman!!! talandi um dugnað...

Manneskja dagsins: klárlega ég fyrir að nenna að þrífa svona mikið!
Bíll dagsins: Bílinn minn sem fer aaaaaaaaalveg að komast í lag:haha:
Matur dagsins: Ýsa í raspi sem er hægt að kaupa í Bónus á 500 kall og svo bara hita upp þegar maður er svangur;)

kv.
Matti, sem er búinn að vera vakandi í alltof langan tíma8|


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 01:55:17 / mattiskratti

Fyrsta bloggið í laaaaaaaaaaangan tíma

Jæja, þá hefur maður ákveðið að rífa aftur upp bloggskóna og byrja þessu bloggeríi aftur!!

Can I get an AMEN to that!! ??

Reyndar búinn að taka mér alltof langt hlé á þessu bloggdæmi að þessi færsla gæti orðið margar A4 blaðsíður að lengd! en ég nenni ekkert að rifja allt það upp sem ég er búinn að gera af mér, það kemur bara með kalda vatninu:haha:

En svo þegar maður er loksins búinn að búa til þessa blessuðu síðu þá veit maður ekkert um hvað maður á að skrifa?
- Á ég að skrifa um hvað ég er að gera á daginn, skal bara redda því 1,3,5 og bingó:
  -vakna, borða, vinna, borða, borða, æfing, borða, borða, sofa:D
- Á ég að skrifa um hve heitt ég elska kærustuna mína? held að þú myndir bara fá ógeð á endalausum ástarjátingum mínum:P

Þannig að ég ætla bara að leyfa ykkur lesendur góðir að ráða því hvað ég skrifa um, commentið bara þá beljur:klikk: já og líka ef þið viljið fara í tengla hjá mér þá endilega látið mig vita með einu stykki commenti!

Hlutur dagsins; Appelsínur, shit hvað þær eru góðar íískaldar!!
Tilboð dagsins: MÖFFINS á 2 fyrir 1 í 10-11 !!! best að fara að byrgja sig upp!
Lag dagsins: Allt sem er ekki á FM
Manneskja dagsins: Ég fyrir að nenna að byrja að blogga aftur8)

Kv.
Matti, tímabundinn næturvörður í HAGGANUM!!


» 9 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill
Gamalt blogg
Bloggers